Ísmús er gagnagrunnur sem geymir íslenskan músík- og menningararf. Á vefnum eru birt gögn sem varða íslenska menningu fyrr og nú: hljóðrit, þjóðsögur, ljósmyndir, kvikmyndir, handrit og texta.
Hér fyrir neðan eru skólaverkefni út frá gagnasafni Ísmús. Kennarar mega sækja verkefnin og breyta þeim að vild til að aðlaga þau að sínu námsefni og nemendum. Skjölin hér á vefnum eru aðeins dæmi um það sem er hægt að gera með gagnasafnið en gætu veitt innblástur að frekari verkefnum.
Ef þú hefur athugasemdir, ábendingar eða vilt deila með okkur þínum verkefnum sem byggja á gagnasafninu má hafa samband við okkur á netfangið mshl@hi.is Við viljum endilega heyra frá þér!
Lengri verkefni
Íslenskar kynjaverur, rannsókn
Nemendur velja sér eina kynjaveru úr íslenskum þjóðsögum og þjóðtrú og skrifa um hana. Nemendur skulu helst nota munnlegar heimildir frá heimildafólki á Ísmús en þar er einnig hægt að fletta upp efni í sagnagrunni þar sem eru bæði munnlegar og skriflegar heimildir. Það getur verið gott að leysa styttri verkefni í tíma til að kynna vefinn fyrir nemendum (sjá t.d. íslenskar kynjaverur, tímaverkefni)
Íslenska, þjóðfræði
- Kynjaverur rannsókn Ísmús PDF
- Kynjaverur rannsókn Ísmús Microsoft Word
Styttri verkefni
Íslenskar kynjaverur, tímaverkefni
Nemendur velja sér eina kynjaveru úr íslenskum þjóðsögum og þjóðtrú og skrifa um hana. Nemendur skulu helst nota munnlegar heimildir frá heimildafólki á Ísmús en þar er einnig hægt að fletta upp efni í sagnagrunni þar sem eru bæði munnlegar og skriflegar heimildir.
Íslenska, þjóðfræði
- Kynjaverur tímaverkefni Ísmús PDF
- Kynjaverur tímaverkefni Ísmús Microsoft Word
Barnagælur og vögguvísur, tímaverkefni
Nemendur velja sér barnagælu eða vögguvísu og leysa verkefni. Þeir hlusta á heimildarmenn flytja vísuna og bera saman hvernig efni í munnlegri geymd er breytilegt eftir heimildarfólki. Verkefnið er hægt að aðlaga að þeim kvæðum sem er unnið með hverju sinni.
Íslenska
- Kvæði tímaverkefni Ísmús PDF
- Kvæði tímaverkefni Ísmús Microsoft Word
Bragarhættir, tímaverkefni
Nemendur skoða fjölbreytt safn bragarhátta og leysa nokkur verkefni þar sem þeir greina bragarhættina, hlusta á flutning heimildafólks á kvæðum og reyna loks að gera sinn eigin bragarhátt
Íslenska
- Bragarhættir tímaverkefni Ísmús PDF
- Bragarhættir tímaverkefni Ísmús Microsoft Word
Íslenskar mállýskur, tímaverkefni
Nemendur nota hljóðritasafnið til að kanna íslenskar mállýskur og taka saman skýrslu.
Íslenska
- Mállýskur tímaverkefni Ísmús PDF
- Mállýskur tímaverkefni Ísmús Microsoft Word
