Kvikmyndasafn Íslands gerir íslenskan kvikmyndaarf aðgengilegan á gagnavefnum Ísland á filmu. Mikið af myndefninu sýnir frá sögulegum atburðum í Íslandssögunni en einnig frá daglegu lífi í samtímanum, fornum verkháttum og fleira.
Hér fyrir neðan eru skólaverkefni út frá gagnasafni Íslands á filmu. Kennarar mega sækja verkefnin og breyta þeim að vild til að aðlaga þau að sínu námsefni og nemendum. Skjölin hér á vefnum eru aðeins dæmi um það sem er hægt að gera með gagnasafnið en gætu veitt innblástur að frekari verkefnum.
Ef þú hefur athugasemdir, ábendingar eða vilt deila með okkur þínum verkefnum sem byggja á gagnasafninu má hafa samband við okkur á netfangið mshl@hi.is Við viljum endilega heyra frá þér!
Lengri verkefni
Rannsókn um valið efni
Hér er búið að taka saman ýmis umfjöllunarefni sem hægt er að skrifa um út frá efninu á Íslandi á filmu. Listinn er ekki tæmandi. Það getur verið gott að leysa styttri verkefni í tíma til að kynna vefinn fyrir nemendum (sjá t.d. Að kynna sér vefinn)
Íslenska, saga, samfélagsfræði
Ritgerð
- Rannsókn ÍÁF ritgerð PDF
- Rannsókn ÍÁF ritgerð Microsoft Word
Kynning (hópaverkefni)
- Rannsókn ÍÁF kynning PDF
- Rannsókn ÍÁF kynning Microsoft Word
Styttri verkefni
Að kynna sér vefinn
Tvö verkefni þar sem nemendur leita að efni á vefnum, annars vegar um sögulegan atburð að eigin vali og hins vegar um breytt umhverfi á Íslandi. Æfing í að nota vefinn sem rannsóknartól, góður inngangur fyrir stærri verkefni sem byggja á sama gagnasafni.
Íslenska, saga, samfélagsfræði
- Að kynna sér vefinn ÍÁF tímaverkefni PDF
- Að kynna sér vefinn ÍÁF tímaverkefni Microsoft Word
Lýsingar á myndefni
Tvö verkefni: Nemendur velja mynd og lýsa hvað gerist; Nemendur velja sér þögla mynd og búa til lýsingu sem þeir lesa inn á myndina. Verkefnið er hugsað fyrir nemendur í íslensku sem öðru máli en það er líka hægt að útfæra það fyrir önnur fög.
Íslenska sem annað mál, íslenska, saga
- Lýsing á mynd ÍÁF tímaverkefni PDF
- Lýsing á mynd ÍÁF tímaverkefni Microsoft Word
Íslenskar mállýskur
Nemendur nota vefinn til að finna máldæmi um íslenskar mállýskur/framburðartilbrigði. Hægt að tvinna saman við verkefni tengdu Ísmús.
Íslenska
- Mállýskur ÍÁF tímaverkefni PDF
- Mállýskur ÍÁF tímaverkefni Microsoft Word
Verkefni um tilteknar myndir og myndskeið
Íslenzkar stúlkur: Myndefni af íslenskum konum og stúlkum í ýmsum störfum um miðja 20. öld.
Samfélagsfræði, kynjafræði, saga, íslenska
- Íslenzkar stúlkur ÍÁF tímaverkefni PDF
- Íslenzkar stúlkur ÍÁF tímaverkefni Microsoft Word
Brunaæfing í Reykjavík 1906: Elsta kvikmynd sem til er frá Íslandi. Vangaveltur um samfélag og sögu þess tíma.
Saga, samfélagsfræði, kynjafræði
- Samfélag og saga ÍÁF tímaverkefni PDF
- Samfélag og saga ÍÁF tímaverkefni Microsoft Word
Páll Ísólfsson: Viðtal við tónskáldið Pál Ísólfsson við lok sjöunda áratugs. Nemendur velta fyrir sér málinu sem er talað á þessum tíma.
Íslenska, saga
- Páll Ísólfsson ÍÁF tímaverkefni PDF
- Páll Ísólfsson ÍÁF tímaverkefni Microsoft Word
Annað áhugavert efni á Íslandi á filmu
Listi yfir ýmsar áhugaverðar myndir sem er hægt að vinna verkefni upp úr. Listinn er tekinn saman í samstarfi við starfsfólk Kvikmyndasafn Íslands.
Saga, íslenska, samfélagsfræði, kvikmyndasaga, jarðfræði o.fl.
- Áhugaverðar myndir ÍÁF PDF
- Áhugaverðar myndir ÍÁF Microsoft Word
