Nafnið.is

Nafnið.is veitir aðgang að skjölum úr örnefnasafni Árnastofnunar sem geyma heimildir um örnefni vítt og breitt um landið. Á síðunni er hægt að fletta upp bæjarnöfnum eða öðrum örnefnum og finna upplýsingar um staðina.

Hér fyrir neðan eru skólaverkefni út frá gagnasafni Nafnsins. Kennarar mega sækja verkefnin og breyta þeim að vild til að aðlaga þau að sínu námsefni og nemendum. Skjölin hér á vefnum eru aðeins dæmi um það sem er hægt að gera með gagnasafnið en gætu veitt innblástur að frekari verkefnum.

Ef þú hefur athugasemdir, ábendingar eða vilt deila með okkur þínum verkefnum sem byggja á gagnasafninu má hafa samband við okkur á netfangið mshl@hi.is Við viljum endilega heyra frá þér!

Lengri verkefni

Rannsókn um stað á Íslandi

Nemendur afla sér upplýsinga um stað á Íslandi að eigin vali, velta fyrir sér örnefnum og reyna að sjá hvað hefur breyst. Þeir eru einnig hvattir til að nota önnur gagnasöfn til að afla sér upplýsinga um staðinn. Hér gæti verið sniðugt að leysa styttra verkefni í tíma áður en lengra verkefnið er lagt fyrir (sjá t.d. XX)
Íslenska, saga

Ritgerð

Kynning

Styttri verkefni

Að kynna sér vefinn

Tvö verkefni: nemendur prófa að leita á vefnum og skoða örnefnaskrárnar og nemendur búa til sína eigin örnefnaskrá fyrir skólann sinn. Velta fyrir sér örnefnum, hvað telst sem örnefni og hvaða fyrirbæri bera örnefni.
Íslenska, saga

×