Tæki og hugbúnaður

Hér á eftir er listi yfir tæki og hugbúnað sem hægt er að fá aðgang að í gegnum MSHL eða hjá aðildarstofnunum MSHL. Eins er hér vísað í tæki og annan búnað sem er aðgengilegur annars staðar, t.d. hjá Clarin.is

Sum þarf að bóka, en önnur eru aðgengileg hverjum sem er á netinu. 

Tæki

Artec 3D Skannar

Þrír skannar, misstórir, til að skanna allt frá minnstu smáatriðum upp í heilar byggingar. Skannarnir eru eftirfarani (nánari upplýsingar á síðu Artec; fylgið krækjum fyrir hvern skanna):

Kaupin voru styrkt af Innviðasjóði.

Hlaðvarps-búnaður

Við Hugvísindasvið Háskóla Íslands er fullkominn hlaðvarpsbúnaður, sem hægt er að bóka að uppfylltum skilyrðum. 

Insta 360

Myndavél ásamt fylgibúnaði til að taka 360 gráðu myndir. 

Kaupin voru styrkt af Tækjakaupasjóði Háskóla Íslands.

Meta Quest 3

Sýndarveruleikagleraugu frá Meta með hleðslustöð. 

Kaupin voru styrkt af Tækjakaupasjóði Háskóla Íslands.

iPad Pro með Polycam

iPad 12 Pro með 500 BG minni, lyklaborði og penna ásamt stórri hleðslustöð. Polycam Pro, forrit fyrir 3D skönnun með photogrammetri aðferðinni, er sett upp.

Kaupin voru styrkt af Tækjakaupasjóði Háskóla Íslands.

Hugbúnaður

Transkribus

Með Transkribus er hægt að láta lesa handskrifuð skjöl og gera þau leitarbær eða tilbúin til útgáfu. MSHL lét þróa tvö módel fyrir íslenska handskrift sem eru aðgengileg hjá Transkribus.

Fyrir stærri verkefni er hægt að sækja um inneign hjá MSHL til að láta lesa mikið magn handskrifaðra skjala.

Verkefnið var styrkt af Innviðasjóði.

Talgreinir

MSHL fékk Tiro til að þróa talgreini fyrir eldra mál. Talgreinar sem voru til réðu ekki við gamlar upptökur, þ.e. upptökur með miklum truflunum og á talmáli sem nýrri mállikön réðu ekki við. Þessi talgreinir bætist við aðra talgreina sem hægt að sækja og nota hjá Tiro.

Talgreinirinn var sérstaklega hannaður fyrir Ísmús grunninn, og er hægt að leita í upptökum hjá Ísmús með hjálp talgreinisins.

Verkefnið var styrkt af Innviðasjóði.

Leitarvél málheilda

Hjá Clarin.is er hægt að leita í íslenskri málheild að orðum og orðasamböndum. 

Mörkun og lemmun

Hjá Clarin.is er hægt að hlaða inn texta til að fá hann markaðan og lemmaðan. Textinn er settur inn í box, eða honum hlaðið upp.

Orðtíðnivefur

Hjá Clarin.is er hægt að leita að orðum í 0rðtíðnivef Risamálheildar.

Máltæknilausnir Almannaróms

Hjá Almannarómi er hægt að fá aðgang að ýmsum máltæknilausnum: Talgreiningu, talgervingu, vélþýðingu og sjálfvirkar leiðréttingar. Eins eru upplýsingar þar um ýmsar málheildir.