Ísmús

Ísmús er gagnagrunnur sem geymir íslenskan músík- og menningararf. Á vefnum eru birt gögn sem varða íslenska menningu fyrr og nú: hljóðrit, þjóðsögur, ljósmyndir, kvikmyndir, handrit og texta.

Hér fyrir neðan eru skólaverkefni út frá gagnasafni Ísmús. Kennarar mega sækja verkefnin og breyta þeim að vild til að aðlaga þau að sínu námsefni og nemendum. Skjölin hér á vefnum eru aðeins dæmi um það sem er hægt að gera með gagnasafnið en gætu veitt innblástur að frekari verkefnum.

Ef þú hefur athugasemdir, ábendingar eða vilt deila með okkur þínum verkefnum sem byggja á gagnasafninu má hafa samband við okkur á netfangið mshl@hi.is Við viljum endilega heyra frá þér!

Lengri verkefni

Íslenskar kynjaverur, rannsókn

Nemendur velja sér eina kynjaveru úr íslenskum þjóðsögum og þjóðtrú og skrifa um hana. Nemendur skulu helst nota munnlegar heimildir frá heimildafólki á Ísmús en þar er einnig hægt að fletta upp efni í sagnagrunni þar sem eru bæði munnlegar og skriflegar heimildir. Það getur verið gott að leysa styttri verkefni í tíma til að kynna vefinn fyrir nemendum (sjá t.d. íslenskar kynjaverur, tímaverkefni)
Íslenska, þjóðfræði

Styttri verkefni

Íslenskar kynjaverur, tímaverkefni

Nemendur velja sér eina kynjaveru úr íslenskum þjóðsögum og þjóðtrú og skrifa um hana. Nemendur skulu helst nota munnlegar heimildir frá heimildafólki á Ísmús en þar er einnig hægt að fletta upp efni í sagnagrunni þar sem eru bæði munnlegar og skriflegar heimildir.
Íslenska, þjóðfræði

Barnagælur og vögguvísur, tímaverkefni

Nemendur velja sér barnagælu eða vögguvísu og leysa verkefni. Þeir hlusta á heimildarmenn flytja vísuna og bera saman hvernig efni í munnlegri geymd er breytilegt eftir heimildarfólki. Verkefnið er hægt að aðlaga að þeim kvæðum sem er unnið með hverju sinni.
Íslenska

Bragarhættir, tímaverkefni

Nemendur skoða fjölbreytt safn bragarhátta og leysa nokkur verkefni þar sem þeir greina bragarhættina, hlusta á flutning heimildafólks á kvæðum og reyna loks að gera sinn eigin bragarhátt
Íslenska

Íslenskar mállýskur, tímaverkefni

Nemendur nota hljóðritasafnið til að kanna íslenskar mállýskur og taka saman skýrslu.
Íslenska

×