Samstarf

Alþjóðlegt samstarf

MSHL er beinn þátttakandi í nokkrum alþjóðlegum verkefnum og áætlunum.

  • DARIAH: MSHL er aðili að DARIAH í þrjú ár, á meðan er verið að athuga með fulla aðild Íslands að DARIAH-ERIC.
  • DHNB: Meðilimir MSHL hafa tekið virkan þátt í samtökunum Digital Humanities in the Nordic and Baltic Countries og miðstöðin hélt árlega ráðstefnu samtakanna í maí 2024.
  • Artistic Intelligence: COST net um listrannsóknir, stafrænar aðferðir og gervigreind. Þátttaka í netinu varð til í framhaldi af samstarfi Listasafns Íslands, Listaháskóla Íslands og Háskóla Íslands um þróun doktorsnáms í listum og listfræði.
  • DACCHE: Verkefni styrkt af INTERREG-NPA áætluninni. Verkefnið snýst um þróun og notkun stafrænna aðferða til að segja sögur og takast á við spurningar um loftlagsbreytingar.
  • ANTIDOTE: MSHL leiðir, ásamt námsbraut í miðaldafræði við Háskóla Íslands, evrópskt þjálfunarnet fyrir stafrænar útgáfur handrita. Verkefnið er styrkt af Erasmus+ KA2 áætluninni (samstarfsverkefni á háskólastigi).
  • Aurora-verkefnið HONE („How Narratives Emerge: A Complexity Science Approach to Public Discourse“) í samvinnu við Palacký-háskólann í Olomouc, Università degli Studi di Napoli Federico II og Universitat Rovira i Virgili.
  • NordHistPop – Nordic Historical Population Data, norrænt samstarfsnet um rannsóknarinnviði sem norræna stofnunin Nordforsk veitti styrki. Verkefnið er hýst hjá MSHL við Háskóla Íslands. Samstarfsaðilar eru frá öllum Norðurlöndunum, en líka frá Kanada og Bandaríkjunum ásamt evrópska rannsóknainnviðinum DARIAH-ERIC.

Innlent samstarf

Samstarf meðlimsstofnana MSHL er einn mikilvægasti hluti miðstöðvarinnar.

  • Gagnís og MSHL eiga í samstarfi um afmörkun verkefna með áherslu á vistun og aðgengi að gögnum sem verða til í rannsóknum.
  • Clarin.is og MSHL eru í samstarfi um þróun stafrænna hugvísinda, enda málheildir og máltækni hluti af stafrænum hugvísindum.
  • ÍREI (Íslenskir rafrænir innviðir) og MSHL eru í samstarfi um tækniþjónustu og vistun gagnagrunna. Fyrsta útgáfa Sögulega mann- og bæjatalsins er þannig vistuð hjá ÍREI.
  • Innan MSHL hafa Listasafn Íslands, Háskóli Íslands og Listaháskóli Íslands myndað samstarf um þróun doktorsnáms í listum og listfræði með áherslu á stafræna safneign Listasafnsins. Verkefnið er styrkt af Samstarfi háskóla.

Samstarf háskólanna

MSHL fékk tvo styrki úr áætlun um Samstarf háskóla 2023 og 2024.

  • Styrkurinn 2023 var til eftirfarandi verkefna:
    • Þróun vefgáttar sem veitir aðgang að gögnum og gagnagrunnum.
    • Þróun þjálfunar- og kennsluefnis fyrir stafræn hugvísindi. 
    • Átak í kynningarmálum um allt land.
  • Styrkurinn 2024 var til eftirfarandi verkefna:
    • Greining gagna með tilliti til persónuverndarmála til að bæta aðgang.
    • Greining gagna með tilliti til höfundaréttar til að bæta aðgang.
    • Þróun lýsigagna fyrir gögn um íslenska menningu.
    • Aðild Íslands að DARIAH.
Staða verkefna:
  •  Tveir verkefnastjórar voru ráðnir hjá MSHL í lok árs 2024, m.a. til að sinna þessum verkefnum.
  • MSHL fékk Performant Software til að vinna greiningu á gögnum og gagnagrunnum til að undirbúa þróun vefgáttar.
  • Vorið 2025 hofst vinna við framleiðslu þjálfunar- og kynningarefnis.
  • Vinnuhópar voru skipaðir í janúar 2025 um persónuvernd, hugverkarétt og lýsigögn.
  • Erindi var sent í ráðuneytið um aðild Íslands að DARIAH í janúar 2025.

MSHL hefur einnig fengið styrk úr Aldarafmælissjóði Háskóla Íslands

  • til að kortleggja stafræn gögn hjá rannsakendum og
  • til að þróa vef MSHL til að bæta aðgengi fyrir alla að vefnum og gögnum.
×