Annar ársfundur Miðstöðvar stafrænna hugvísinda og lista (MSHL) verður haldinn föstudaginn 17. apríl frá kl. 13:00 til 15:30 í Fyrirlestrarsal Þjóðminjasafns Íslands við Suðurgötu.
Á fundinum verður farið yfir starfsemi MSHL síðastliðið ár og verkefnin sem miðstöðin hefur staðið fyrir. Í kjölfar ársskýrslunnar verða fjögur erindi um fjölbreyttar hliðar stafrænna hugvísinda og lista með áherslu á tungumálið og notkun gervigreindar.
Sjá frétt hér.
Dagskrá
13:00–13:30 Eiríkur Smári Sigurðarson, stjórnarformaður MSHL
Ársskýrsla 2025
13:30–13:55 Lilja Dögg Jónsdóttir, Almannarómur
Málið og menningarbyltingin
13:55–14:15 Kaffihlé
14:15–14:40 Helga Lára Þorsteinsdóttir, RÚV
Talgreining í safni RÚV: að finna nál í heystakki
14:40–15:05 Steinþór Steingrímsson, CLARIN-IS
CLARIN og gagnahirslan: Hvaða gögn og fyrir hvern?
15:05–15:30 Katrín Lísa L. Mikaelsdóttir, MSHL
Vélrænn lestur handritaðra skjala: Vegvísir að bættum árangri
