Grúska er verkefnabanki fyrir grunn- og framhaldsskóla. Verkefnin byggja á því að nemendur noti gagnagrunna um íslenskt menningarefni sem rannsóknartól og læri að nota þá til að afla sér upplýsinga. Nemendur eru þannig hvattir til þess að kafa dýpra í tiltekið efni, rannsaka og grúska í gögnum um íslenskt mál, sögu og menningu.
Verkefnin eru flokkuð eftir gagnagrunnum og fyrir hvert verkefni er tillaga að faggreinum sem þau gætu hentað í. Kennurum er frjálst að breyta verkefnunum eins og þá lystir og aðlaga efnið að sínum kennsluháttum og nemendum.
Vefurinn verður uppfærður þegar fleiri verkefni koma inn fyrir fleiri gagnagrunna. Hér á heimasíðu MSHL má líka sjá lista yfir fleiri gagnagrunna um íslenskt menningarefni.
Ef þú hefur athugasemdir, ábendingar eða vilt deila með okkur þínum verkefnum má hafa samband við okkur á netfangið mshl@hi.is Við viljum endilega heyra frá þér!
