|
Ársfundur MSHL, nýtt starfsfólk og styrkveitingar
|
| |
|
CDHA Annual Event, new staff members and grants
|
| |
MSHL Fréttir
Málið og vélin: Ársfundur MSHL 2026
Annar ársfundur Miðstöðvar stafrænna hugvísinda og listaverður haldinn 17. apríl frá kl. 13:00 til 15:30 í Fyrirlestrarsal Þjóðminjasafns Íslands við Suðurgötu.
Á fundinum verður farið yfir starfsemi MSHL síðastliðið ár og verkefnin sem miðstöðin hefur staðið fyrir. Í kjölfar ársskýrslunnar verða fjögur erindi um fjölbreyttar hliðar stafrænna hugvísinda og lista með áherslu á tungumálið og notkun gervigreindar.
Dagskrá
13:00–13:30 Eiríkur Smári Sigurðarson, stjórnarformaður MSHL Ársskýrsla 2025
13:30–13:55 Lilja Dögg Jónsdóttir, Almannarómur Málið og menningarbyltingin
Kaffihlé
14:15–14:40 Helga Lára Þorsteinsdóttir, RÚV Talgreining í safni RÚV: að finna nál í heystakki
14:40–15:05 Steinþór Steingrímsson, CLARIN-IS CLARIN og gagnahirslan: Hvaða gögn og fyrir hvern?
15:05–15:30 Katrín Lísa L. Mikaelsdóttir, MSHL Vélrænn lestur handritaðra skjala: Vegvísir að bættum árangri
Nýir starfsmenn
Tveir nýir starfsmenn komu til liðs til að sinna verkefnum fyrir MSHL. Eva Hrund Sigurjónsdóttir, aðjunkt í íslensku við HÍ, hefur verið ráðin tímabundið. Hún mun fyrst og fremst sinna gerð þjálfunar- og kennsluefnis. Váli Andreis, BA nemi í þjóðfræði, hefur verið ráðið í hlutastarf. Hán mun sjá um samfélagsmiðla og gerð kynningarefnis fyrir miðstöðina. Við bjóðum þau hjartanlega velkomin.
Kennsluefni fyrir framhaldsskóla
MSHL hefur fengið styrk frá Háskóla Íslands til að þróa kennsluefni fyrir framhaldsskóla. Markmiðið er að velja 3-4 gagnagrunna og stafræn tól og útbúa stuðningsefni fyrir notkun þess í kennslu.
Styrkir úr Nýsköpunarsjóði námsmanna
Tvö verkefni á vegum MSHL hafa hlotið styrki úr Nýsköpunarsjóði námsmanna:
- Katrín Lísa L. Mikaelsdóttir (umsjónamaður, MSHL) fyrir þjálfun HTR-líkans fyrir íslenskt ritmál 13. aldar.
- María Guðmundsdóttir (umsjónamaður, Parity ehf. í samstarfi við Þjóðminjasafn Íslands) fyrir þrívíddarskönnun menningararfs.
CUSP: Creative Understanding, Saving and Preserving Time-Based Media Art
Listasafn Íslands leiðir verkefni styrkt af Creative Europe um tímatengda myndlist, sem oft er í stafrænu formi. MSHL er samstarfsaðili. |
| |
CDHA news
Language and Technology: CDHA Annual Event 2026
The second annual event of the Centre for Digital Humanities and Arts will take place on 17 April from 13:00 to 15:30 in the Lecture Hall of the National Museum of Iceland.
At the meeting, we will review CDHA’s activities over the past year and the projects the Centre has spearheaded. Following the annual report, there will be four presentations on diverse aspects of digital humanities and the arts.
Programme
13:00–13:30 Eiríkur Smári Sigurðarson, CDHA chair Annual Report 2025
13:30–13:55 Lilja Dögg Jónsdóttir, Almannarómur Málið og menningarbyltingin
Coffee break
14:15–14:40 Helga Lára Þorsteinsdóttir, RÚV Talgreining í safni RÚV: að finna nál í heystakki
14:40–15:05 Steinþór Steingrímsson, CLARIN-IS CLARIN og gagnahirslan: Hvaða gögn og fyrir hvern?
15:05–15:30 Katrín Lísa L. Mikaelsdóttir, CDHA Vélrænn lestur handritaðra skjala: Vegvísir að bættum árangri
New staff members
Two new staff members have joined the team at CDHA. Eva Hrund Sigurjónsdóttir, adjunct lecturer in Icelandic at the University of Iceland, has been hired short term to work on producing teaching and training materials. Váli Andreis, BA student in Folkloristics, has been hired for a part-time position. They will be in charge of social media and the creation of promotional materials for the Centre. We warmly welcome them both.
Teaching materials for high schools
CDHA received a grant from the University of Iceland to develop teaching and training materials for secondary schools. The aim is to select 3-4 databases and tools and produce supporting materials to use them in teaching.
Grants from the Student Innovation Fund
Two projects associated with CDHA have been awarded grants from the Student Innovation Fund from Rannís - The Icelandic Centre for Research:
- PI Katrín Lísa L. Mikaelsdóttir (CDHA) for training a Handwritten Text Recognition model for 13th-century Icelandic.
- PI María Guðmundsdóttir (Parity Games in cooperation with the National Museum of Iceland) for 3D scanning of cultural heritage assets.
CUSP: Creative Understanding, Saving and Preserving Time-Based Media Art
The National Gallery co-ordinates a project funded by Creative Europe on time-based art, often in a digital format. CDHA is a collaborative partner. |
| |
DARIAH
Fyrirlestraröð DARIAH: Friday Frontiers
DARIAH-EU Friday Frontiers vefnámskeið nefndist „Mytholudics: Games and Myth" og fer fram föstudaginn 10. apríl 2026, kl. 11:30 CET. Fyrirlesari verður Dom Ford sem starfar við Háskólann í Bergen sem hluti af LEAD AI áætluninni. Skráning: her.
DARIAH webinar series: Friday Frontiers
DARIAH-EU’s online talk spring series continues on 10 April 2026 at 11:30 CET with Dom Ford from the Center for Digital Narrative at the University of Bergen, as part of the LEAD AI programme: "Mytholudics: Games and Myth." Registration is free here. |
| |
Viðburðir á næstunni
Fyrirlestraröð MSHL: Stafræn hugvísindi í hádegismat Þriðjudaga, kl. 12:00–13:00 í Veröld (VHV-108)
Fyrirlestraröð MSHL, Stafræn hugvísindi í hádegismat, heldur áfram í vor með spennandi fyrirlestrum, sem haldnir verða á þriðjudögum kl. 12 í Veröld 108 og sýndir verða beint á YouTube rás okkar. Upptökur verða aðgengilegar eftir viðburðunum. Fyrirlestrarnir verða haldnir á íslensku eða ensku og eru ókeypis og opnir öllum.
7. apríl Ondřej Tichý (Karlsháskólinn í Prag): Benchmarking Large Language Models for DH Research
14. apríl Eydís Huld Magnúsdóttir (Háskóli Íslands): Fjársjóðsleit með máltækni
21. apríl Timothy Liam Waters (Ohio State University): Virtual Vikings: A Case of Identity Formation and Techno-Skepticism in the in the Digital Vernacular
28. apríl Sigríður Regína Sigurþórsdóttir (Háskóli Íslands): Titill TBA
Fyrirlestur CMS: Áhrifarík hönnun og siðferðileg myndgerð gagna 1. apríl, kl. 16:30–18:00, CMS í Prag og á Zoom
Katrín Lísa L. Mikaelsdóttir (Háskóli Íslands, MSHL) flytur gestafyrirlestur hjá Miðaldastofunni í Prag í Tékklandi. Í fyrirlestrinum er því haldið fram að myndgerð gagna sé ekki einungis tæknileg færni, heldur húmanísk iðja sem krefst sömu gagnrýnu túlkunar og við beitum á texta og aðra menningararfleifð. Þátttakendur kynnast meginreglum skýrrar og ábyrgrar myndrænnar framsetningar og hvernig hönnunarákvarðanir móta merkingu gagna. Hafið samband við a.michalcova@ujc.cas.cz fyrir Zoom-hlekk.
ANTIDOTE viðburður: Prescribing the Processing Pipeline 8. apríl, kl. 09:00–12:00 í Stapa 210 og á Zoom
Erasmus+ samstarfsnetið ANTIDOTE (Advanced Training in Digitization of Older Texts) býður nemendum, fræðimönnum, skjalavörðum, bókasafnsfræðingum og öðru fagfólki til málþingsins: Prescribing the Processing Pipeline.
Á málþinginu verður sjónum beint að stafrænni vinnslurás, allt frá handriti til útgáfu, myndgerðar og skýringa. Markmið viðburðarins er að efla samstarf á milli Háskóla Íslands, Þjóðskjalasafns Íslands, Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns, Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum og sérfræðinga innan ANTIDOTE. Fulltrúum stofnana er boðið að kynna þær áskoranir sem þær standa frammi fyrir við stafræna endurgerð, á meðan sérfræðingar sýna nýjustu tól, aðferðir og lausnir til að yfirstíga þær.
Nánari upplýsingar og dagskrá má finna hér.
Skráning er nauðsynleg. Hægt er að skrá sig hér.
Fyrirlestur Miðaldastofu: Bosworth-Toller Anglo-Saxon Dictionary Online: Saga orðabókar og stafrænnar endurgerðar hennar 9. apríl, kl. 16:30–17:30 í fyrirlestrasal Eddu (E-103)
Í yfir heila öld hefur Bosworth-Toller orðabókin verið helsta undirstöðuritið í námi og rannsóknum á fornensku, þrátt fyrir ósamræmi í uppbyggingu. Í þessum fyrirlestri Miðaldastofu Háskóla Íslands verður fjallað um sögu orðabókarinnar og hvernig hún var endurgerð sem stafrænt tól sem nú þjónar milljónum notenda árlega. Ondřej Tichý (Karlsháskólinn í Prag) fer yfir vinnuferlið og hvernig nútíma staðlar hafa gert þessu 150 ára gamla riti kleift að yfirstíga takmarkanir prentmiðilsins og nýtast til fulls á netinu. Fyrirlesturinn verður haldinn á ensku og er öllum opinn. |
| |
Upcoming Events
CDHA Lecture Series: Lunch with Digital Humanities Tuesdays, 12:00–13:00, Veröld (VHV-108)
The Centre's lecture series, Lunch with Digital Humanities, continues this spring with exciting lectures. Lectures will be held on Tuesdays at 12 in Veröld 108 and livestreamed on our YouTube channel. The recordings will be made available after the talks. The lectures are free and open to everyone and will be held in Icelandic or English.
7 April Ondřej Tichý (Charles University, Prague): Benchmarking Large Language Models for DH Research
14 April Eydís Huld Magnúsdóttir (University of Iceland): Fjársjóðsleit með máltækni
21 April Timothy Liam Waters (Ohio State University): Virtual Vikings: A Case of Identity Formation and Techno-Skepticism in the in the Digital Vernacular
28 April Sigríður Regína Sigurþórsdóttir (University of Iceland): Title TBA
Digital Humanities in Medieval Studies lecture: Effective design and ethical data visualisation 1 April, 16:30–18:00, CMS Prague and on Zoom
Katrín Lísa L. Mikaelsdóttir (University of Iceland, CDHA) will be giving a guest lecture at the Centre for Medieval Studies in Prague, Czech Republic. The talk explores data visualisation not just as a technical skill, but as a humanistic act requiring the same interpretive judgment applied to texts and artefacts. Attendees will learn the core principles of clear, ethical graphical representation and how design choices shape meaning. The talk is hybrid. For the Zoom link, please contact a.michalcova@ujc.cas.cz.
ANTIDOTE Multiplier Event: Prescribing the Processing Pipeline 8 April, 09:00–12:00, Stapi 210 and on Zoom
The Erasmus+ funded network ANTIDOTE (Advanced Training in Digitization of Older Texts) is pleased to invite students, scholars, archivists, librarians, and practitioners to our upcoming multiplier event: Prescribing the Processing Pipeline.
This event focuses on the digitization pipeline from the physical manuscript to digital editions, visualization, and annotation. The purpose of this event is to foster collaboration between the University of Iceland, the National Archives of Iceland, the National and University Library of Iceland, and the Árni Magnússon Institute for Icelandic Studies, and the experts within the ANTIDOTE network. Local institutions are invited to present their current digitization challenges while international experts will showcase the latest tools, methods, and solutions to overcome them.
Further information and schedule can be accessed here.
Registration is required prior to the event. You can sign up here.
Miðaldastofa lecture: Bosworth-Toller Anglo-Saxon Dictionary Online: The Story of a Dictionary and its Digitization 9 April, 16:30–17:30, Edda Auditorium (E-103)
For over a century, the Bosworth-Toller dictionary has been the primary resource for Old English, despite its structural quirks and inconsistencies. This talk, as part of the Miðaldastofa lecture series, explores the dictionary’s history and its transformation into a digital application that now sees millions of annual users. Ondřej Tichý (Charles University, Prague) will outline the methodology and discuss how adhering to modern standards has allowed this 150-year-old resource to finally overcome its print limitations and reach its full potential online. |
| |
Ráðstefnuköll
Árleg ráðstefna CLARIN
Árleg ráðstefna CLARIN verður haldin í Brighton í Bretlandi 29. september til 1. október á þessu ári. Undanfarin ár hafa þó nokkrar greinar frá Íslandi verið samþykktar inn á ráðstefnuna. Allir áhugasamir eru hvattir til að senda inn ágrip að grein fyrir 6. apríl.
Venice Summer School in Digital and Public Humanities - VeSSDPH 2026
VeSSDPH býður upp á ítarlega þjálfun í tækni og aðferðum sem beitt er við rannsóknir á sögulegum minnum, munum og textum. Sjónum verður beint að menningarlegu, fornleifafræðilegu, sögulegu, bókmenntalegu og listrænu efni úr feneyskum söfnum og menningarstofnunum. Þátttakendur munu taka þátt í umræðum um stafrænan menningararf, samhliða því að efla færni sína í stafrænni skráningu heimilda ásamt líkanagerð, greiningu og myndrænni framsetningu á margmiðlunargögnum á sviði hugvísinda. Sumarskólinn verður haldinn í Feneyjum dagana 6.–10. júlí 2026. Umsóknarfrestur er til 13. apríl.
Helsinki Digital Humanities Hackathon #DHH26
Hakkþonið í stafrænum hugvísindum í Helsinki (#DHH26) er tíu daga alþjóðlegur sumarskóli þar sem nemendur og rannsakendur úr hugvísindum, félagsvísindum og gagnavísindum vinna saman að rannsóknarverkefnum. Þátttakendur starfa í þverfaglegum hópum við að beita tölvuvinnslu á raunveruleg gögn, allt frá mótun rannsóknarspurninga til kynningar á lokaafurð. Þátttaka er ókeypis, gefur 5 ECTS einingar og takmarkaður fjöldi styrkja fyrir ferðakostnaði og gistingu stendur erlendum umsækjendum til boða. Umsóknarfrestur: 14. apríl. |
| |
Open Calls
CLARIN Annual Conference
The annual CLARIN conference will be held in Brighton, UK, from 29 September to 1 October this year. In recent years, quite a few papers from Iceland have been accepted for the conference. All interested parties are encouraged to submit an abstract. Application deadline: 6 April
Venice Summer School in Digital and Public Humanities - VeSSDPH 2026
The Venice Summer School in Digital and Public Humanities provides advanced and in-depth training in theories, technologies and methods applied to historical monuments, artefacts and texts. Focussing on cultural, archaeological, historical, literary, and artistic materials from Venetian sites and cultural heritage institutions, participants will engage in debates about digital cultural heritage and public humanities while enhancing their competencies and skills in digitising materials and sources and in modelling, analysing and visualising multimedia humanities data. The Summer School will be held in Venice from 6-10 July 2026. Application deadline: 13 April
Helsinki Digital Humanities Hackathon #DHH26
The 11th Helsinki Digital Humanities Hackathon (#DHH26) is an intensive 10-day international summer school where students and researchers from the humanities, social sciences, and data science collaborate on full-cycle research projects. Participants work in interdisciplinary teams to apply computational methods to real-world datasets, from formulating questions to presenting final results. The programme is free, offers 5 ECTS credits, and provides limited travel/accommodation support for international applicants. Application deadline: 14 April |
| |
|