Miðstöð stafrænna hugvísinda og lista / Centre for Digital Humanities and Arts Fréttabréf / Newsletter Feb 2026
MSHL á UTmessunni og Elskum gögnin okkar vikan - MSHL at the National IT Expo and Love Data Week

Viðburðir

MSHL á UTmessunni

MSHL tekur þátt í UTmessunni annað árið í röð, en þetta er stærsta tæknihátíð ársins fyrir öll sem hafa áhuga á tækni. Hátíðin fer fram dagana 6.–7. febrúar í Hörpu.

Föstudaginn 6. febrúar kl. 13:00 í Norðurljósum Hörpu mun Eiríkur Smári Sigurðarson, formaður MSHL, flytja erindi á ráðstefnudegi UTmessunnar: „Opin gögn, opin menning: Um framtíð stafrænna hugvísinda“. Í erindinu verður fjallað um tækifærin sem felast í opnum aðgangi að stafrænum gögnum um listir, menningu og sögu, ásamt þeim áskorunum sem þarf að yfirstíga til að láta þá framtíðarsýn verða að veruleika.

Laugardaginn 7. febrúar, á Tæknideginum, verður MSHL með bás á sýningarsvæðinu. Við sýnum hvernig þvívíddarskönnun er notuð til að varðveita menningarerfðir, kynnum menningarsögulega gagnagrunninn Sarp og bjóðum gestum að prófa VR-gleraugu. Tæknidagurinn er öllum opinn og ókeypis og fer fram kl. 11:00–16:00 í Hörpu.

Elskum gögnin okkar vikan

Vikan 9.-13. febrúar fer fram Elskum gögnin okkar vikan (e. Love Data Week) sem haldin er að frumkvæði Inter-university Consortium for Political and Social Research. Háskólar og rannsóknastofnanir á Norðurlöndunum standa nú sameiginlega að viðburðinum Nordic Love Data Week, þar sem þemað er „Hvar eru gögnin?“. Markmiðið er að efla vitund og innleiða vinnubrögð við umsýslu, miðlun og læsi á rannsóknagögnum þvert á Norðurlöndin. Viðburðurinn er ókeypis og hægt er að nálgast dagskrána hér.

ANTIDOTE

Vinnustofan sérfræðinga þjálfunarnetsins ANTIDOTE fór fram dagana 19.–23. janúar við CNRS í Lyon. Nemendur og kennarar frá öllum sjö samstarfsaðilunum tóku þátt í framhaldsþjálfun í stafrænni útgáfu handrita.

Events

MSHL at UTmessan

MSHL will participate in UTmessan for the second year in a row, the largest festival for anyone interested in technology, held on February 6–7, 2026, in Harpa.

On February 6 at 13:00 in Norðurljós, Eiríkur Smári Sigurðarson, Chairman of MSHL, will give a presentation during the Conference Day on "Open Data, Open Culture: On the Future of Digital Humanities." The talk will address the opportunities inherent in open access to digital data regarding arts, culture, and history, as well as the challenges we face in making this a reality.

On February 7, the Tech Day, MSHL will have a booth. We will demonstrate how 3D scanning is used to preserve cultural heritage, introduce the cultural history database Sarpur, and provide VR glasses for visitors to try out. Tech Day is free and open to everyone, taking place from 11:00 to 16:00 in Harpa.

Love Data Week

The week of February 9-13 will be Love Data Week, an initiative of the Inter-university Consortium for Political and Social Research. Universities and research institutions across the Nordic countries are collaborating to host Nordic Love Data Week, centring on the theme "Where’s the Data?" The aim is to promote awareness and best practices about research data management, data sharing, and data literacy across the Nordic region. The event is free and the schedule can be accessed here.

ANTIDOTE

The ANTIDOTE training network successfully hosted its second expert training week from January 19–23 at CNRS Lyon. Students and teachers from the seven partner institutions participated in the advanced training for digital editions of manuscripts.

Ráðstefnuköll

Ráðstefna EADH – „Linking Europe: Digital Humanities Without Borders“

Ráðstefna European Association for Digital Humanities verður haldin dagana 15.–19. september 2026 við Jagellonian-háskólann í Kraká og er skipulögð af Digital Humanities Lab háskólans og IJP PAN við pólsku vísindaakademíuna. Tekið er á móti innsendingum fyrir veggspjöld, stutt og löng erindi og vinnustofur um gagnavinnslu og aðferðir, gervigreind og siðfræði, innviði og opin vísindi, menningararf og fjölbreytileika, sem og samfélög og framtíð stafrænnar hugvísinda. Fjarþátttaka er í boði fyrir fyrirlesara.
Umsóknarfrestur: 8. febrúar

TEI 2026 – „Creating Connections, Unsettling Practices“

Text Encoding Initiative (TEI) hefur kynnt kall eftir erindum, veggspjöldum, tólum og vinnustofum fyrir 26. ársfund sinn: „TEI 2026: Creating Connections, Unsettling Practices“. Ráðstefnan verður haldin dagana 10.–14. ágúst 2026 við University of British Columbia í Vancouver, Kanada.
Umsóknarfrestur: 19. febrúar

Open Calls

EADH Conference – “Linking Europe: Digital Humanities Without Borders”

The European Association for Digital Humanities Conference will take place on 15–19 September 2026 at Jagiellonian University in Kraków, co-organized by the university’s Digital Humanities Lab and the Institute of Polish Language of the Polish Academy of Sciences. Submissions are open for posters, short and long papers, and workshops, covering topics such as data and methods, AI and ethics, infrastructure and open science, cultural heritage and diversity, and the communities and futures of DH. Online participation is available for presenters. Application deadline: 8 February

TEI 2026 – “Creating Connections, Unsettling Practices”

The Text Encoding Initiative (TEI) announced the call for papers, posters, tool demonstrations, and workshops for their 26th annual meeting: "TEI 2026: Creating Connections, Unsettling Practices", held August 10–14, 2026, at the University of British Columbia, Vancouver, BC, Canada. It seeks to bring together scholars, librarians, developers, and students to address the ethical, social, and technical challenges of digital textual editing in the 21st century. Application deadline: 19 February

linkedin  instagram  bluesky 
Unsubscribe
Miðstöð stafrænna hugvísinda og lista