Miðstöð stafrænna hugvísinda og lista / Centre for Digital Humanities and Arts Fréttabréf / Newsletter Nóvember 2026
Unfolding Data Through Art
IMG_3881

MSHL fréttir

Vetrarskólinn Unfolding Data Through Art

Í síðustu viku hélt MSHL vetrarskólann Unfolding Data Through Art. Alls tóku 20 nemendur víða að úr heiminum þátt í dagskránni undir leiðsögn Nicola Privato (Háskóla Íslands), Majella Clarke (Listaháskóla Íslands) og Sigríðar Regínu Sigurþórsdóttur (Háskóla Íslands og Listasafns Íslands). 

CDHA News

Winter School Unfolding Data Through Art

Last week, CDHA held the winter school Unfolding Data Through Art. Twenty students from around the world took part in the programme, led by Nicola Privato (University of Iceland), Majella Clarke (Iceland University of the Arts) and Sigríður Regína Sigurþórsdóttir (University of Iceland and the National Gallery of Iceland).

IMG_3861

Könnun

NorDiBri - Könnun um stafrænan menningararf á Íslandi

Starfar stofnunin þín við að varðveita, skrá eða miðla menningararfi? NorDiBri óskar eftir svörum frá menningarstofnunum á Íslandi, sérstaklega þeim sem hafa fáa starfsmenn og takmarkað bolmagn til stafrænnar þróunar.

NorDiBri (North Atlantic Digital Bridge) er verkefni Miðstöðvar stafrænna hugvísinda og lista og hefur hlotið styrk frá ECHOES, evrópsku samstarfsverkefni sem vinnur að uppbyggingu Evrópska menningararfsskýsins (ECCCH).

Markmið könnunarinnar er að kanna starfshætti, þarfir og helstu hindranir íslenskra menningararfsstofnana í tengslum við stafræna yfirfærslu, skráningu, varðveislu og miðlun safnefnis. Niðurstöðurnar verða nýttar til að móta fræðslu, vinnustofur og hagnýtt stuðningsefni.

Óskað er eftir einu svari frá hverri stofnun. Könnunin tekur um 10–15 mínútur og svör eru nafnlaus. Þau sem þekkja til stofnunar sem könnunin gæti átt erindi við eru hvött til að koma henni áfram.

Taktu þátt í könnuninni: Stafrænn menningararfur – staða og þarfir stofnana á Íslandi.
Svarfrestur hefur verið framlengdur til föstudagsins 6. nóvember kl. 16.00.


Spurningum um könnunina má beina til Sigrúnar Guðmundsdóttur, ábyrgðarmanns verkefnisins, á netfangið sigrungudm@hi.is.

ECHOES_CascGrants-1200x565

Viðburðir á næstunni

Fyrirlestraröð MSHL: Stafræn hugvísindi í hádegismat

Fyrirlestraröð MSHL, Stafræn hugvísindi í hádegismat, heldur áfram í nóvember með 4 spennandi fyrirlestrum, sem haldnir verða á þriðjudögum kl. 12 í Odda 206 og sýndir verða beint á YouTube rás okkar. Upptökur verða aðgengilegar eftir viðburðunum. Fyrirlestrarnir eru ókeypis og opnir öllum.

3. nóvember
Robin Morabito (Listaháskóli Íslands):
The Sonic Holobiont - A Framework for Ecoacoustics in the Microscopic World

10. nóvember
Tom Tiest (University College PXL-Music):
Erring on the Side of Beauty: Making Music from Mistakes in Art Education

17. nóvember
Thomas Pausz (Háskóli Íslands, Intelligent Instruments Lab):
Digital Gardening: Experiments in Human-Plant Mediation

24. nóvember
Anda
Baklāne (Landsbókasafn í Lettlandi)
TBA

Ráðstefna í samstarfi við Vigdísarstofnun og CLARIN-IS um European Language Data Space

Föstudaginn, 13. nóvember, kl. 9-15

European Language Data Space leiðir saman sérfræðinga úr íslensku atvinnulífi, opinberri stjórnsýslu og rannsóknaumhverfi til að ræða mikilvægi tungumálagagna fyrir þróun máltækni og gervigreindarknúinna verkfæra á Íslandi. Á vinnustofunni gefst þátttakendum tækifæri til að miðla þekkingu, ræða áskoranir og kanna möguleika á að efla íslensk tungumálagögn og styðja við þróun gervigreindartækni fyrir íslensku. Skráning hér.

DARIAH-IS/CDHA og CLARIN-IS dagur

Fimmtudaginn, 26. nóvember, kl. 13.00-16.30

DARIAH og CLARIN á Íslandi standa saman að málstofu fimmtudaginn 26. nóvember frá 13 til 16.30. Þema vinnustofunnar er notkun gervigreindar í rannsóknum í hugvísindum. Aðalfyrirlesari er Anda Baklāne, sérfræðingur hjá Landsbókasafninu í Lettlandi, en hún mun tala um notkun fjölþátta gervigreindar við að greina stór fjölþátta gagnasöfn. Í lok málstofunnar verður vinnustofa þar sem þátttakendum gefst tækifæri til að tala við sérfræðinga gagnavinnslu og gervigreind um sín eigin verkefni.

templates for promo(13)

Upcoming events

Lunch with Digital Humanities

The Centre's lecture series, Lunch with Digital Humanities, continues this month with 4 exciting lectures. Lectures will be held on Tuesdays at 12 in Oddi 206 and livestreamed on our YouTube channel. The recordings will be made available after the talks. The lectures are free and open to everyone.

3 November
Robin Morabito (Iceland University of the Arts):
The Sonic Holobiont - A Framework for Ecoacoustics in the Microscopic World

10 November
Tom Tiest (University College PXL-Music):
Erring on the Side of Beauty: Making Music from Mistakes in Art Education

17 November
Thomas Pausz (University of Iceland, Intelligent Instruments Lab):
Digital Gardening: Experiments in Human-Plant Mediation

24 November
Anda Baklā
ne (National Library of Latvia)
TBA

European Language Data Space Workshop in collaboration with the Vigdís International Centre and CLARIN-IS

Friday, 13 November, from 9-15

The European Language Data Space is bringing together experts from Icelandic industry, public administration, and research to discuss the importance of language data for the development of language technologies and AI-based tools in Iceland. The workshop will provide an opportunity to exchange knowledge, explore challenges, and discuss opportunities for strengthening Icelandic language resources and supporting the development of AI technologies for Icelandic. Registration here.

DARIAH-IS/CDHA and CLARIN-IS Day

Thursday, 26 November, from 13.00-16.30

DARIAH and CLARIN in Iceland are jointly hosting a seminar on Thursday 26 November, from 13:00 to 16:30. The theme of the seminar is the use of artificial intelligence in humanities research. The keynote speaker is Anda Baklāne, a specialist at the National Library of Latvia, who will speak about using multimodal AI to analyse large multimodal datasets. The seminar will close with a workshop in which participants can discuss their own projects with experts in data processing and AI.

Iceland CW

Ráðstefnukall

DH 2027 - Creativity

Alliance of Digital Humanities Organizations (ADHO) býður upp á innsendingar fyrir árlega ráðstefnu sína, DH2027, sem haldin verður í Galway, Írlandi, 29. júni – 3. júlí 2027. Umsóknarfrestur: 20. nóvember.

Call for Papers

DH 2027 - Creativity

The Alliance of Digital Humanities Organizations (ADHO) invites for submissions to its annual conference, DH2027, to be held in Galway, Ireland, 29 June  – 3 July 2027. Submission deadline: 20 November.

linkedin  instagram  bluesky 
Unsubscribe   |    View online
Miðstöð stafrænna hugvísinda og lista